Í útikamri í Lóni
– á Skaftfellsku. Tegund útikamra er að nafni Vera, norsk gæðavara.

Búinn að bera
bakpoka‘og flera
ætla að gera
því undir er Vera.
HPH

Um Gjögur

Skelfilegt er nú skjögur
skakklappast ég um Gjögur
ógnandi ólgulögur
er neðar fótum mér,
kann engar karlasögur
kjarkurinn búinn er.
HPH

Íbúfen

Íbúfenjar yfir fór
og eyðimerkur líka.
Klettaklifur, yfirklór,
kann ein nokkur slíka
-vísu
HPH


Dagur þrjú

Glens og hlátur, gaman þá
hjá göngufólki‘í Hópi
ætla‘og veit að eru á
íbúfeni‘og dópi.
HPH


Skálaverðirnir Hildur og Steinunn

Fjallakonur, frjálsar sprundir
farnar eru‘úr reifum.
Á þær lifa‘um allar grundir
afgöngum og leifum.
HPH